Fyrir hverja? 

Forritið Lesheimur kemur sér vel fyrir börn og unglinga í almennu lestrarnámi. Einnig fyrir börn og unglinga sem dvalist hafa erlendis. Tilvalið fyrir fólk af erlendum uppruna sem æfir framburð og lestur.

Þeir sem eiga við leserfiðleika að stríða geta auðveldlega nýtt sér forritið.
Fólk sem endurhæfir sig eftir veikindi eða slys getur valið þann þátt sem það kýs að æfa.

Kennaranemar sem búa sig undir lestrakennslu fá góða yfirsýn yfir hljóðainnlögn. Hagkvæm lausn fyrir háskólanema erlendis sem læra íslensku og framburð. Gott er fyrir Íslendinga sem búsettir eru erlendis að hafa aðgang að forritinu.



Forritið Lesheimur hefur reynst gríðarlega öflugt hjálpartæki. Forritið er grunnur að lestrarnámi og skýrum framburði. 

Þú lærir að lesa af öryggi. Forritið Lesheimur er einfalt í notkun. Lykillinn að læsi og skýrum framburði er að ná valdi á sérhljóðunum. Hljóðaöryggi er traustur grunnur til að byggja á. Þú getur æft þig að vild og ræður eigin hraða. 

Hvernig vilt þú nota? Helstu kostir eru þeir að auðvelt er að afmarka æfingar markvisst, stilla hraða við hæfi og uppgötva eigin leiðir í notkun forritsins. Hægt er að nota endurtekið og afmarkað eða fara hratt í gegnum til þess að fá heildaryfirsýn. Forritið geymir einmitt heildarmynd hljóðainnlagnar lestrarþáttar.

Hvað er í boði? Forritið Lesheimur inniheldur öll hljóð stafrófsins og algeng sambönd þeirra, alls 917 hljóð (stafhljóð/samtengd hljóð) auk mynda. Hægt er að nýta sér myndir í forritinu til að minna á stafhljóð eða samhljóðasamband. Einnig heyrist orð lesið sem táknar myndina ef smellt er á hana.  

Orðasafn er í forritinu og má heyra valið orð lesið um leið og það birtist rammanum. Auðvelt er að endurtaka að vild valin hljóð og algengar hljóðatengingar sem og einstök orð.

 


Hvar er hægt að fá forritið?

Forritið má nálgast með því að senda tölvupóst á netfangið:
mariainga@lesheimur.is eða hafa samband í síma: 899-6561.

Það er einungis selt skólum og stofnunum. Forritið er háð leyfissamningi sem skólastjóri eða forstöðumaður stofnunar undirritar. Samningurinn gildir í ár og miðast verð við notendafjölda.
Forritið er sniðið að heildarnámsefninu en má einnig nota eitt og sér. Sjálfsagt er að veita nánari upplýsingar ef óskað er.

Hér er hægt að ná í prufuútgáfu af forritinu.

Leiðbeiningar með prufueintaki:
Fjórir fyrstu sérhljóðar/samhljóðar/sambönd á hverju borði eru virkir til prufu. Allar aðgerðir sem snúa að þeim eru virkar svo sem myndir og hljóðatengingar. Einnig má smella á myndir til að heyra orð lesið. Þegar bókstafur eða samband er valið má einnig hægri smella músarhelmingi og þá má heyra orð lesið úr orðasafni og heyra fleiri en eitt orð með hverjum staf.
 


Efst á síðu
Forsíða